Hafnarsvæði, umsókn um stöðu- eða torgsöluleyfi
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 455
10. apríl, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Hattur ehf kt. 571104-2290 óskar eftir stöðuleyfi fyrir pylsubíl/matbíl á hafnarsvæðinu. Málið var tekið fyrir í Hafnarstjórn þann 1. feb sl. og var vísað til Skipulags- og byggingarráðs, sem tók jákvætt í erindið. Hafnarstjórn samþykkti 02.04.13 að pylsuvagninum verði stillt á bílastæðin ofan við lokuðu flotbryggjurnar í Flensborgarhöfn til reynslu til loka september 2013.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við "Reglur um götusölu og útimarkaði í landi Hafnarfjarðarbæjar", þar sem skipulags- og byggingarsvið er formlegur leyfisveitandi.