Aðalfundur Suðurlinda ohf.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1699
13. mars, 2013
Annað
Fyrirspurn
4.liður úr fundargerð BÆJH frá 7.mars sl. Lagt fram fundarboð dags. 5. mars 2013 vegna aðalfundar Suðurlinda ohf. sem haldinn verður 18. mars nk. Einnig lagðar fram samþykktir félagsins og ársreikningur 2012. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að félaginu verði slitið og tekið upp óformlegt samráð viðkomandi aðila.
Jafnframt er kosningu í stjórn vísað til bæjarstjórnar.
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Þá Lúðvík Geirsson. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 8 atkvæðum að félaginu verði slitið og tekið upp óformlegt samráð viðkomandi aðila. 1 sat hjá.