SHS, slökkvistöð við Skarhólabraut, lántaka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3341
24. janúar, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf, dags. 18. janúar 2013, frá stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. þar sem þess er óskað að bæjarráð veiti heimild til lántöku vegna framkvæmda að Skarhólabraut, allt að 254 milljónir króna.
Svar

Bæjarráð leggur eftirfarandi til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar veitir stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs heimild til lántöku vegna framkvæmda að Skarhólabraut, allt að 254 milljónir króna".