SHS, slökkvistöð við Skarhólabraut, lántaka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1696
30. janúar, 2013
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð BÆJH frá 24.jan. sl. Lagt fram bréf, dags. 18. janúar 2013, frá stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. þar sem þess er óskað að bæjarráð veiti heimild til lántöku vegna framkvæmda að Skarhólabraut, allt að 254 milljónir króna. Bæjarráð leggur eftirfarandi til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar veitir stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs heimild til lántöku vegna framkvæmda að Skarhólabraut, allt að 254 milljónir króna".
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.