Kaplakriki, breyting á deiliskipulagi
Kaplakriki
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 334
19. nóvember, 2013
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga Batterísins ehf dags. 29.08.13 að deiliskipulagi svæðisins. Greint frá viðræðum við skipulagshönnuð og forsvarsmann FH í samræmi við bókun á síðasta fundi ráðsins. Tekin til umræðu viðmið um bílastæði við íþróttaleikvangi.
Svar

Sigurbergur Árnason tók sæti á fundinum að nýju.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir greinargerð varðandi nýtingu mannvirkja og álag á svæðið á mismunandi tímum ásamt samnýtingu bílastæða.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsækjanda um byggingarmagn.