Kaplakriki, breyting á deiliskipulagi
Kaplakriki
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 328
9. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Batterísins ehf dags. 29.08.13 að deiliskipulagi við svæðið.
Svar

Samkvæmt tillögunni kemur fram að alls er gert ráð fyrir að á íþróttasvæðinu verði 255 bílastæði. Óskað er upplýsinga um hámarksnýtingu svæðisins á háannatíma annars vegar og þegar aðeins helmingur mannvirkja eru í notkun. Ef reiknað er með samnýtingu stæða þá þarf að gera grein fyrir því á skýringaruppdrætti sem og öryggisaðkomum slökkvi- og sjúkrabíla.
SBH felur sviðinu að kanna nýtingarhlutfall á íþróttasvæðum á höfuðborgarsvæðinu til samanburðar fyrir næsta fund.