Staðarmörk sveitarfélaga, óbyggðanefnd
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3352
30. maí, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Óbyggðanefndar dags 23. maí 2013 varðandi sveitarfélagsmörk á Suðvesturlandi. Guðmundur Benediktsson lögmaður og Ólafur Helgi Árnason lögmaður skipulags- og byggingarmála mættu á fundinn og fóru yfir stöðu málsins .
Svar

Bæjarráð Hafnarfjarðar staðfestir að Guðmundur Benediktsson lögmaður annast hagsmunagæslu fyrir hönd sveitarfélagsins vegna máls nr. S-1/2011 þar til afgreiðslu Óbyggðanefndar varðandi sveitarfélagsmörk á Suðvesturlandi er lokið.