Hafnarstjórn - 1419
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3338
20. desember, 2012
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundagerð hafnarstjórnar frá 13. 12. sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 10.1. 1210361 - Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016. Tekin fyrir tillaga um að hefja viðræður við Faxaflóahafnir um hugsanlega kosti sameiningar Hafnarfjarðarhafnar við Faxaflóahafnir eða að samstarf hafnanna verði aukið til muna, sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 5. desember 2012 að vísa til hafnarstjórnar til frekari skoðunar. Málinu frestað til næsta fundar svo fundarmönnum gefist tækifæri til að íhuga þessa tillögu. 10.2. 1212086 - Umsókn um Óseyrarbraut 40M Lögð fram umsókn Atlantsolíu ehf. um lóðina Óseyrarbraut 40 M, dagsett 4. desember 2012 og undirrituð Bjarki Kristjánsson, véltæknifræðingur hjá Mannviti verkfræðistofu, fyrir hönd Atlantsolíu. Hafnarstjórn samþykkir að heimila Atlantsolíu afnot af lóðinni fyrir eldvarnarbúnað sinn, enda greiði Atlantsolía lóðarleigu af svæðinu. 10.3. 0909104 - Saga Hafnarfjarðarhafnar Farið yfir stöðu mála varðandi útgáfu sögu Hafnarfjarðarhafnar. Hafnarstjórn samþykkir að formleg afhending bókarinnar fari fram þann 28. des. nk. 10.4. 1106231 - Leki inn á Hvaleyrarbraut 28 Lagt fram erindi lóðarhafa Hvaleyrarbrautar 28, þar sem ítrekuð er krafa um lausn á vanda vegna leka inn á lóðina, dagsett 12. desember 2012, undirritað Gylfi matthíasson Hafnarstjórn ítrekar fyrri afgreiðslu málsins frá 14. maí sl. og felur hafnarstjóra að koma því á framæri við hlutaðeiganda.