Ásvallabraut tenging Valla og Áslands, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 635
31. október, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulagsstofnun gerði athugasemd vegna málsmeðferð deiliskipulagsins og bendir á að gera þurfi aðalskipulagsbreytingu samhliða. Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi dags. 27. október 2017 ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ásvallabraut og breytingar fyrir Ásland 3 og Hlíðarþúfur.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 skv. 1. mgr. 31. gr. sbr.36. gr. skipulagslaga 123/2010. Fyrirhuguð skipulagsbreyting gerir í ráð fyrir að í stað tveggja tengibrauta sunnan núverandi byggðar við Ásvelli 3, verði ein braut, Ásvallabraut. Lega hennar breytist þannig að hún tengist Kaldárseelsvegi og Elliðavatnsvegi með hringtorgi neðan Hlíðarþúfna en tenging við Ásland 3 verði felld út. Lega Kaldaárselsvegar breytist lítillega sem og tenging hans við íbúðarsvæðið við Mosahlíð.

Einnig er samþykkt að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi ásamt breytingum skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010 og að deiliskipulagið verði auglýst aftur samhliða framangreindri aðalskipulagsbreytingu.

Gerir skipulags- og byggingarráð því eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í samræmi við 1. mgr. 31. gr. sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða tillögum að breyttu deiliskipulagi, sbr. 1. mgr. 41.gr. skipulagslaga 123/2010"