Ásvallabraut tenging Valla og Áslands, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 651
26. júní, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Afgreiðslu deiliskipulags Ásvallabraut var frestað á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 20. júní s.l. og vísað aftur til skipulags- og byggingarráðs. Erindi lagt fram á ný ásamt athugasemdum sem bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn skipulagsfulltrúa, dagsetta 25. apríl 2018 og vísar málinu aftur til afgreiðslu í bæjarstjórn og leggur til að erindið verði samþykkt. Skipulags- og byggingarráð leggur til að málið verði tekið fyrir eftir sumarleyfi bæjarstjórnar eða 22. ágúst nk.  GestirHelga Stefánsdóttir mætti á fundinn undir þessum lið. - 00:00