Ásvallabraut tenging Valla og Áslands, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1738
21. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
15.liður úr fundargerð SBH frá 13.jan.sl. Haldið áfram umræðu um tillögu Landmótunar að deiliskipulagi dags 12.08.2014 ásamt greinargerð. Kynningarfundur var haldinn 11.11.14. Áður lagðir fram minnispunktar af kynningarfundinum. Lagðir fram hljóðvistarreikningar ásamt sneiðingum í land með hljóðveggjum. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að deiliskipulag fyrir Ásvallabraut milli Skarðshlíðar og Áslands verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010"
Svar

Ólafur Ingi Tómasson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 10 samhljóða atkvæðum.