Ásvallabraut tenging Valla og Áslands, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 362
13. janúar, 2015
Samþykkt
Fyrirspurn
Haldið áfram umræðu um tillögu Landmótunar að deiliskipulagi dags 12.08.2014 ásamt greinargerð. Kynningarfundur var haldinn 11.11.14. Áður lagðir fram minnispunktar af kynningarfundinum. Lagðir fram hljóðvistarreikningar ásamt sneiðingum í land með hljóðveggjum.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að deiliskipulag fyrir Ásvallabraut milli Skarðshlíðar og Áslands verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010"