Norðurhella 11,byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 438
5. desember, 2012
Annað
Fyrirspurn
Alexander Ólafsson sækir 22.11.12 um að byggja nýtt verslunarhúsnæði að Norðurhellu 11, samkvæmt teikningum Gunnlaugs Jónsonar dag.20.10.12.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010 og jafnframt að fara megi eftir ákvæðum eldri byggingarreglugerðar. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.

13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.