Furuás 2 byggingarstig og notkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 434
7. nóvember, 2012
Annað
Fyrirspurn
Húsið er skráð á byggingarstigi 4, fokhelt, þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar dags. 04.12.12 kl. 13.15 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinni hann ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu.