Suðurbær nýtt deiliskipulag
Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 342
11. mars, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarsvið kynnti tillögu að deiliskipulagi. Fulltrúi Byggðasafns Hafnarfjarðar kynnti husaskráningu fyrir svæðið. Kynningarfundur var haldinn 22.10.2013 og farið var yfir innkomnar ábendingar við vinnslu tillögunnar.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagið með áorðnum breytingum verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi Suðurbæjar dags. 05.03.14 verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010."