Athafnasvæði hestamannafélags Sörla, breyting á DSK
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 307
16. október, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Bæjarráð óskar eftir því við skipulags- og byggingarráð að ráðið yfirfari skipulags- og byggingarskilmála ásamt gjaldskrá vegna hesthúsalóða. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir að skipulags- og byggingarsvið endurskoði skipulag hesthúsahverfis og geri tillögu að breytingum. Lagt fram á síðasta fundi og skipulags- og byggingarsviði jafnframt falið að ræða tillöguna við forsvarsmenn hestamannafélagsins Sörla. Skipulags- og byggingarsvið gerði grein fyrir þeim viðræðum á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulaginu í samræmi við 43. gr. laga nr. 123/2010.