Athafnasvæði hestamannafélags Sörla, breyting á DSK
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 314
22. janúar, 2013
Annað
Fyrirspurn
Deiliskipulag athafnasvæðisins var auglýst 31.10.12 skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs 16.10.12. Athugasemdatíma er lokið, athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum og drög að svörum við þeim.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir og gerir svör skipulags- og byggingarsviðs að sínum.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og því verði lokið í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.