Bjarkavellir 1b, breyting á byggingarleyfi
Bjarkavellir 1A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 426
12. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Valhús ehf sækir 06.09.12 um að breyta þaki samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 27.08.12.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt. Þ.m.t. lóðarhönnun þar sem fram kemur kvöð um girðinu við Kirkjuvelli í samræmi við deiliskipulag. Jafnframt er eldra byggingarleyfi fellt úr gildi skv. 2. mgr. 14. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010.
13. grein mannvirkjalaga:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197727 → skrá.is
Hnitnúmer: 10003978