Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3326
6. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga dags. 29. ágúst 2012 með tillögu sem stjórn sjóðsins samþykkti varðandi endurgreiðsluhlutfall vegna lífeyrisgreiðslna.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að endurgreiðsluhlutfall launagreiðanda á greiddan lífeyrir Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar verði 66%."