Garðavegur 15,stækkun á bílastæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 422
15. ágúst, 2012
Annað
Fyrirspurn
Sævar Guðmundsson leggur inn fyrirspurn um stækkun á bílastæði við Garðaveg 15. Umsögn Umhverfis- og framkvæmdasviðs liggur fyrir.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið svo fremi sem bílastæði sé innan lóðar. Til að fá pláss fyrir bílastæði í viðbót þarf að sækja um lóðarstækkun til bæjarráðs. Lóðarhafi mun bera allan kostnað við framkvæmdina og alla aðlögun að bæjarlandi.