Stjórn Hafnarborgar - 318
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3326
6. september, 2012
Annað
‹ 21
22
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 21.8.sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 22.1. 1012065 - Hafnarborg stjórn Kosning formanns í nýrri stjórn Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri kjörinn formaður 22.2. 1110115 - Hafnarborg 2012 Farið var yfir sýningar árisins og kynnt drög að sýningadagskrár árin 2013 og 2014.


22.3. 1004383 - Hafnarborg, framtíðarsýn Í nokkurn tíma hefur verið unnið að mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir Hafnarborg. Á hverjum tíma er mikilvægt að slík stefnumótun liggi fyrir þar sem hún er leiðarljós fyrir starfsemi lista- og menningarmiðstöðvarinnar og um leið verkfæri stjórnenda í árlegir áætlun um aðgerðir.

Vinna við stefnumótun er í þremur lykilskrefum;
- greining á stöðu
- úrvinnsla og mótun stefnu
- aðgerðaáætlunar sem innleiðir áherslur stefnumótunar

Hjá Hafnarborg fólst greining m.a. í fjölmennum fundi hagsmunaaðila þar sem þeir veltu fyrir sér stöðu og tækifærum. Í kjölfarið var unnin lýsing á hlutverki, framtíðarsýn, gildum, stefnumarkandi áherslum og lykilatriðum til árangurs fyrir Hafnarborg. Var sú vinna kynnt á fundi með stjórn og listráði Hafnarborgar síðla vetrar.

Í framhaldi af þeim fundi var hafist handa við að binda áherslur stefnunnar í tillögur að aðgerðum sem eiga að skila Hafnarborg í átt að þeirri sýn og stöðu sem mótuð hefur verið. Lokið er við að draga fram hugmyndir og tillögur en eftir er að vinna þær nánar inn í áður nefnda áætlun um aðgerðir næsta vetrar og næstu ára. Gert er ráð fyrir að sú vinna klárist fyrir lok september.
22.4. 1004379 - Hafnarborg, viðhald útilistaverka Forstöðumaður gerði grein fyrir þeirri vinnu sem unnin hefur verið í sumar. Forvörður vann að viðgerðum ásamt tveim starfsmönnum sem ráðnir voru til starfa. Annar starfamaðurinn kom í gegnum atvinnuátak námsmanna og hinn í gegnum vinnuskólann. Öll brons verk voru hreinsuð og forvarin. Áætlað að halda áfram næsta vor.