Reglur um götusölu og útimarkaði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 303
14. ágúst, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga um reglur um götusölu og útimarkaði. Bæjarráð vísaði tillögunni til umsagnar skipulags- og byggingarmála. Lögð fram umsögn sviðsstjóra dags. 10.08.2012.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn sviðsstjóra og bendir á að mikilvægt sé að slíkar reglur hvetji til starfsemi af þessu tagi.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks vilja að skoðað verði fyrir næsta sumar að nota hús Jólaþorpsins á Torsplani, auglýsa þau laus til umsóknar og mynda þannig markaðsstemningu á planinu yfir sumartímann.