Reglur um götusölu og útimarkaði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1685
29. ágúst, 2012
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð BÆJH frá 23.ágúst sl. Tekið fyrir að nýju. Lagðar fram umbeðnar umsagnir. Bæjarráð staðfestir reglur um götusölu og útimarkaði fyrir sitt leyti með þeirri breytingu að tilvísun í umhverfis- og framkvæmdasvið í 2., 3., 4., 5., 7. og 8. gr. breytist í skipulags- og byggingarsvið. Reglunum með áorðnum breytingum vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagðar reglur um götusölu og útimarkaði.