HS Veitur hlutafé, forkaupsréttur Hafnarfjarðar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3370
27. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka dags. 13. febrúar 2014 þar sem upplýst er að sala hefur farið fram á bréfum í HS Veitum í samræmi við fyrri ákvörðun bæjarráðs um að falla frá forkaupsrétti.
Einnig lagt fram erindi stjórnar HS Veitna dags. 21. febrúar 2014 þar sem óskað er eftir staðfestingu á að Hafnarfjarðarbær hyggist ekki nýta forkaupsrétt sinn.
Svar

Bæjarráð staðfestir að Hafnarfjarðarbær hyggst ekki nýta forkaupsrétt sinn.