Brekkuás strætóskýli, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 426
12. september, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir erindi umhverfis- og framkvæmdasviðs um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Áslands til að staðsetja strætóskýli samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Tillagan var auglýst 31.07.12 skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.