Hamarsbraut 17 bílastæði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 420
1. ágúst, 2012
Annað
Fyrirspurn
Athugasemd hefur borist um að verið sé að tyrfa lóðina þar sem gert er ráð fyrir bílastæðum. Borist hafa bréf frá eigendum dags. 20.07.12 þar sem færð eru rök fyrir að hafa bílastæðin á öðrum stað en sýnt er í skipulagi og á lóðablaði. Einnig hafa borist bréf sömu dags. þar sem athugasemdir eru gerðar við hreinsun á götunni og frágangi götunnar.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til eigenda að skila inn byggingarleyfisuppdrætti með þeim tillögum um bílastæði sem getið er í bréfinu. Bréf varðandi hreinsun og frágang eru send áfram ú umhverfis- og framkvæmdasvið.