Hafnarstjórn - 1408
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3317
16. maí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 14. maí sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 15.1. 1010890 - Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2011 Lagður fram ársreikningur hafnarinnar 2011 til fyrri umræðu.
Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri skýrði reikningana og svaraði fyrirspurnum. Hafnarstjórn samþykkir að taka ársreikninginn til síðari umræðu á næsta fundi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska bókað:"Við undirritaðir stjórnarmenn í Hafnarstjórn gerum athugasemd við að ársreikningur Hafnarfjarðarhafnar 2011 sé tekin fyrir og samþykktur í bæjarstjórn áður en hann er tekinn fyrir í hafnarstjórn og teljum við það ekki forsvaranleg vinnubrögð." undirritað Örn Johnsen, Helga Ragnheiður Stefánsdóttir. Hafnarstjórn samþykkir að fela hafnarstjóra að senda endurskoðendum Hafnarfjarðarhafnar, KPMG greinagerð vegna athugasemda á blaðsíðu 5 í skýrslu þeirra. 15.2. 1112202 - Óseyrarbraut 31, lóða- og byggingamál Tekið fyrir að nýju úthlutunarskilmálar fyrir lóðina Óseyrarbraut 31 Hafnarstjóri fór yfir og skýrði úthlutunarskilmála v lóðarinnar og Hafnarstjórn samþykkir úthlutunarskimálana vegna Óseyrarbrautar 31. 15.3. 1106231 - Leki inn á Hvaleyrarbraut 28 Tekið fyrir erindi Gylfa Matthíassonar vegna leka inn á lóðina Hvaleyrarbraut 28. Hafnarstjóri kynnti hugmynd að tilboði um samkomulag við lóðarhafa. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að taka þátt  í þeirri lausn, enda falli niður  allar aðrar kröfur lóðarhafa. 15.4. 1205158 - Aðstaða fyrir Ísafold, hvalaskoðunarbát Farið yfir málaleitan eigenda Ísafoldar um aðstöðu og aðstoð fyrir hvalaskoðunarbátinn Íafold í Hafnarfjarðarhöfn Hafnarstjórn samþykkir að veita  Hvalaskoðunarbátnum Ísafold þá aðstoð, sem þeir sækjast eftir.