Norðurbakki 7-9, breyting
Norðurbakki 7A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 404
11. apríl, 2012
Annað
Fyrirspurn
Haghús ehf sækir 29.03.12 um breytingar á gildandi byggingarnefndarteikningum. Útbrún 1.hæðar færð út í línu við efri hæðir, gluggasetningu og útliti breytt lítilega,íbúðum fjölgað úr 62 í samtals 72 í báðum húsum. Samkvæmt teikningum Pálmars Kristmundsonar dag.27.03.12.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar rétt skráningatafla berst og skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 200310 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092205