Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Skipulags- og byggingarráði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 295
20. mars, 2012
Annað
‹ 13
14
Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks frá síðasta fundi: Tillaga um átak í skráningu fasteigna í Hafnarfirði. Í ljósi upplýsinga og umræðu síðustu vikur um misbrest á skráningu fasteigna í Hafnarfirði til Fasteignamats ríkisins (FMR) og í samræmi við bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í SBH þann 10.jan. sl. er lagt til að: 1. Starfsmaður eða starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar af skipulags- og byggingarsviði eða af öðru sviði bæjarins verði falið að skrá byggingarstig og notkun fasteigna í bænum þar til fullvissa er fengin fyrir því að allar fasteignir í Hafnarfirði eru rétt skráðar hjá FMR. 2. Að skráðar verði allar óskir skipulags og byggingarsviðs um breytingar á byggingarstigi fyrir árið 2011 og 2012. 3. Að skýrt komi fram í skráningu á hvaða byggingarstigi viðkomandi fasteign var þegar ósk um rétta skráningu er lögð fram, hvenær áætlað er að viðkomandi fasteign hafi verið tekin í notkun eða verið komin á byggingarstig 4 og 7, og hvenær rétt skráning hafi verið uppfærð hjá FMR. 4. Að fram komi hve áætlað tekjutap hafi verið fyrir Hafnarfjarðarbæ af rangri skráningu viðkomandi fasteignar. 5. Að verklagi við eftirliti á skráningu verði breytt þannig að sem réttust mynd fáist af skráningu fasteigna hverju sinni. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir grein fyrir stöðu aðgerða skv. liðum 1-3.
Svar

Lögð fram drög að svörum við tillögum og frestað til næsta fundar.