Einivellir 5, byggingarstig og úttektir
Einivellir 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 403
28. mars, 2012
Annað
Fyrirspurn
Einivellir 5 er skráð á byggingarstig 7, þrátt fyrir að engin lokaúttekt hafi átt sér stað. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 12.03.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði dagsektir á byggingarstjóra Ágúst Pétursson, en í ljós kom að hann hafði skráð sig af verki.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi boðar til lokaúttektar 30.04.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra Anton Kjartanssyni er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinni hann ekki erindinu mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu. Bent er á ábyrgð eigenda skv. 15. gr. laga um mannvirki: "Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra".
Dagsektir á fv. byggingarstjóra Ágúst Pétursson eru felldar niður.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197732 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075369