Menningar- og ferðamálanefnd - 176
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3309
9. febrúar, 2012
Annað
‹ 11
12
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 1. febrúar 2012.
Svar

Lagt fram til kynningar. 12.1. 1201587 - Áætlun ferðamála 2012 Lögð fram drög að markaðsáætlun fyrir árið 2012. Farið yfir áætlunina og hún samþykkt. Áhersla lögð á að visithafnarfjordur.is verði komin í lag eigi síðar en 1. apríl nk. 12.2. 1201586 - Starfsáætlun menningar- og ferðamála 2012. Starfsáætlun lögð fram. 12.3. 1201585 - Safnanótt 2012 Dagskrá Safnanætur í Hafnarfirði lögð fram en safnanótt verður haldin 10. febrúar n.k. Nefndin lýsir yfir ánægju með metnaðarfulla dagskrá. 12.4. 11021243 - Kvikmyndasafn Íslands og Bæjarbíó. Lögð fram drög að fylgiskjali með samningi við Kvikmyndasafn Íslands, sem snýr að notkun á Bæjarbíói. Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að vinna áfram að málinu. 12.5. 1106052 - Könnun á fjölda ferðamanna til Hafnarfjarðar 2011. Rætt um fund sem haldinn var í Bæjarbíói þann 26. janúar sl. Þar voru m.a. niðurstöður um fjölda ferðamanna í Hafnarfirði sumarið 2011 kynntar. Málin rædd. 12.6. 1201307 - Styrkir menningar- og ferðamálanefndar 2012. Farið yfir úthlutunarreglur og fl. Ákveðið að reglur um úthlutun frá 2010 gildi óbreyttar.