Bjarkavellir 3, breyting á deiliskipulagi
Bjarkavellir 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 293
21. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir beiðni fræðsluráðs Hafnarfjarðar um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar, þannig að í stað þess að byggður verði grunn- og leikskóli við Bjarkavelli 3 verði verði byggður 4ra deilda leikskóli. meirihluti skipulags- og byggingarráðs heimilaði 10.1.2012, breytingu á deiliskipulagi í samráði við skipulags- og byggingarsvið. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi dags. 08.02.12.
Svar

Meirihluti skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu til breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 43. gr. laga nr. 123/2010.
Gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Bjarkavalla 3, Hafnarfirði í samræmi við uppdrátt dags. 8. febrúar 2012 í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá og vísa í fyrri bókun dags. 10. jan. sl.