Menningar- og ferðamálanefnd - 174
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3306
15. desember, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 7. desember sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 22.1. 1108149 - Jólaþorpið 2011 Menningar- og ferðamálafulltrúi greindi frá því hvernig til hefur tekist í Jólaþorpinu. Þorpið var vel sótt þær tvær helgar sem liðnar eru, opnunardaginn komu yfir 10.000 gestir í verslunarmiðstöðina Fjörð sem gefur góða mynd af fjölda gesta Jólaþorpsins. Nefndin lýsir yfir ánægju með aðsókn í Jólaþorpið. 22.2. 1109140 - Tjaldstæðið á Víðistaðatúni. Lagðar fram umbeðnar tölur um gistinætur frá framkvæmdastjóra tjaldsvæðisins á Víðistaðatúni. Nefndin þakkar fyrir tölurnar og vonar að tjaldstæðið verði áfram ágætlega nýtt. 22.3. 1112049 - Fjárhagsáætlun menningar- og ferðamála 2012. Fjárhagsáætlun lögð fram til kynningar og umræðu. 22.4. 1112048 - Hátíð Hamarskotslækjar Dagskrá Hátíðar Hamarskotslækjar lögð fram en hátíðin verður haldin í annað skiptið sunnudaginn 11. desember.