Kirkjuvellir 3.Byggingarstig og notkun.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 11.01.2012 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingastjóri sótti 20.01.2012 um lokaúttekt, en athugasemdir voru gerðar við útfærslu. Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði 20.11.12 eftir leiðréttum gögnum þannig að lokaúttekt gæti farið fram. Þau hafa ekki borist.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að sækja um endurtekna lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga. Öryggismálum hússins er ábótavant.