Skipalón 10, aflétting kvaðar
Skipalón 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 295
20. mars, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi FM-húsa ehf dags. 03.11.11 þar sem óskað er eftir að Skipulags- og byggingarráð aflétti þeirri kvöð af húsinu Skipalón 10 að íbúar skuli vera 50 ára og eldri. Áður lögð fram umsögn Fræðslusviðs og Framkvæmdasviðs sem gera ekki athugasemd við erindið. Skipulagið var auglýst í samræmi við 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdafresti er lokið, athugasemdir bárust. Frestað á síðasta fundi. Lögð fram samantekt Skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum.
Svar

Guðrún Ólafsdóttir tekur sæti Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur á fundinum við afgreiðslu þessa máls.

Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu og byggir á innkomnum athugasemdum frá íbúum í nágrenni.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203296 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083548