Skipalón 10, aflétting kvaðar
Skipalón 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 294
6. mars, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju erindi FM-húsa ehf dags. 03.11.11 þar sem óskað er eftir að Skipulags- og byggingarráð aflétti þeirri kvöð af húsinu Skipalón 10 að íbúar skuli vera 50 ára og eldri. Áður lögð fram umsögn Fræðslusviðs og Framkvæmdasviðs sem gera ekki athugasemd við erindið. Skipulagið var auglýst í samræmi við 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdafresti er lokið, athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.02.2012, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir víkur af fundi. Guðrún M. Ólafsdóttir tók sæti hennar.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að taka saman athugasemdir og gera drög að svörum í samræmi við umræður á fundinum fyrir næsta fund skipulags- og byggingarráðs.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203296 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083548