Menningar- og ferðamálanefnd - 170
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3303
17. nóvember, 2011
Annað
‹ 12
13
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningaar- og ferðamálanefndar frá 8. nóvember sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 13.1. 1108149 - Jólaþorpið 2011 Greint frá góðum viðtökum í söluhúsin í Jólaþorpinu en upppantað er í öll hús. Lögð fram kostnaðaráætlun og drög að skemmtidagskrá. Nefndin lýsir yfir ánægju með dagskrá. 13.2. 1011117 - Krýsuvík-Seltún, Þjónustusamningur við Reykjanesfólkvang. Frestað til næsta fundar. 13.3. 1111068 - Hátíð Hamarskotslækjar, styrkumsókn. Lögð fram styrkumsókn vegna Hátíðar Hamarskotlækjar sem haldin verður 11. desember að þessu sinni. Nefndin getur ekki orðið við erindinu. 13.4. 1106052 - Könnun á fjölda ferðamanna til Hafnarfjarðar 2011. Frestað til næsta fundar. Gögn frá Rannsóknum og ráðgjöf í ferðaþjónustu ehf., bárust ekki fyrir fundinn. 13.5. 10021337 - Ferðaþjónusta í Hafnarfirði, fundir með fyrirtækjum Rætt um hvenær og hvernig beri að standa að næsta fundi. Rætt um dræma þátttöku ferðaþjónustuaðila á þessum fundum. Málið rætt. 13.6. 11021243 - Kvikmyndasafn Íslands og Bæjarbíó. Frestað til næsta fundar. Engar nýjar fréttir hafa borist frá menntamálaráðuneyti. 13.7. 1111072 - Framkvæmdasjóður ferðamannastaða. Umsóknarfrestur er til 25. nóvember. Rætt um hvort Hafnarfjörður eigi að sækja um í þennan nýja sjóð. Helmingur kostnaðar við verkefni verður að greiðast af umsækjanda. Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að kanna grundvöll fyrir umsókn ásamt stjórn Reykjanesfólkvangs. 13.8. 1111060 - Afmælissýning í Bókasafni Hafnarfjarðar í tilefni af 50 ára ártíð Friðriks Bjarnasonar, 100 ára afmælis Páls Kr. Pálssonar og 90 ára afmælis Bókasafns Hafnarfjarðar. Lagt fram kynningarbréf frá Njáli Sigurðssyni.