Álfhella 17, tímabundið byggingarleyfi
Álfhella 17
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 383
2. nóvember, 2011
Annað
Fyrirspurn
Slysavarnafélagið Landsbjörg sækir 28.10.2011 um tímabundið leyfi í 1.ár á meðan að verið er að undirbúa mál vegna endanlegra staðsettningar hússins á lóðinni samkvæmt teikningum Gunnar B. Stefánssonar dagsettar 28.10.2010.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin til eins árs í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.

Mannvirkjalög 13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1.
Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2.
Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3.
Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4.
Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 213449 → skrá.is
Hnitnúmer: 10096275