Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, fjárhagsáætlun 2012
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1668
9. nóvember, 2011
Annað
Fyrirspurn
5. liður úr fundargerð BÆJH frá 3.nóv. sl. Lögð fram fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis fyrir árið 2012. Heilbrigðisnefnd fjallaði um áætlunina á fundi þann 24. október sl. Jafnframt lagðar fram tillögur að gjaldskrám vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits og vegna hundahalds. Bæjarráð vísar fjárhags- og rekstraráætluninni til skoðunar í fjárhagsáætlunarvinnu 2012.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögur að gjaldskrám."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.