Íshella 8, viðbygging, úttektir, byggingarstig og notkun.
Íshella 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 392
11. janúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Byggingarfulltrúi samþykkti þann 15.3.2005 viðbyggingu við húsið nr. 8 við Íshellu. Síðasta skráða úttekt er á botnplötu viðbyggingar 11.5.2006 en viðbyggingin er risin og í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 28.11.11, en byggingarstjóri brást ekki við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að óska eftir lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203613 → skrá.is
Hnitnúmer: 10076830