Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2012-2015.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1692
21. nóvember, 2012
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð BÆJH frá 15.nóv. sl. Lagður fram viðauki IV við fjárhagsáætlun ársins 2012. Fjármálastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir viðaukanum. Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi viðauka IV við fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar 2012."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Þá Rósa Guðbjartsdóttir, Geir Jónsson. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Geir Jónsson svaraði andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Sigríður Björk Jónsdóttir svaraði andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Kristinn Andersen tók til máls. Þá Helga Ingólfsdóttir. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að ansdvari. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 6 atkvæðum. 5 sátu hjá.

Helga Ingólfsdóttir kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks:

"Hér er lagður fram VI viðauki við fjárhagsáætlun 2012.

Þann 23. maí sl. lögðu fulltrúar sjálfstæðisflokksins fram tillögu um aukafjárveitingu vegna viðhalds fasteigna að fjárhæð 34 miljónir ljósi þess hve þrengt hefur verið að málaflokknum síðastliðin ár og aukins umfangs í viðhaldi vegna yfirtöku á fasteignum vegna málaflokks fatlaðra.

Það er mjög miður að tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem vísað var til bæjarráðs með öllum greiddum atkvæðum bæjarfulltrúa skyldi ekki fá þá úrvinnslu hjá bæjarstjóra að þessi málaflokkur fengi það viðbótarframlag sem lagt var til samkvæmt framkominni tillögu."


Valdimar Svavarsson (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),
Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).

Gert stutt fundarhlé.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lagði fram svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Vinstri Grænna og Samfylkingar:

"Hér er verið að samþykkja viðauka IV við fjárhagsáætlun 2012. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins tengist engu af því sem þar er að finna.
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins fjallar um tillögu sem lögð var fram í bæjarstjórn 23. maí og vísað til bæjarráðs, sem fól bæjarstjóra úrvinnslu málsins. Farið var í viðhaldsframkvæmdir á þeim fimm eignum sem keyptar voru af ríkinu. Það viðhald var annars vegar tekið af eignarsjóði og hins vegar Húsnæðisskrifstofu. Bæjarstjóri hefur kallað eftir upplýsingum um sundurgreiningu þess viðhalds sem farið var í og tilgreindar voru í upphaflegri tillögu Sjálfstæðisflokksins. Varðandi almennt viðhald húseigna bæjarins er vísað til samþykktrar viðhaldsáætlunar til næstu fimm ára."

Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign), Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign), Guðfinna Guðmundsdóttir (sign),
Eyjólfur Sæmundsson (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign) og Lúðvík Geirsson (sign).