Vesturbær, endurgert og nýtt deiliskipulag
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 1888
6. apríl, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 25.mars sl. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 6.10.2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi vesturbæjar og vísaði til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn staðfesti samþykkt skipulags- og byggingarráðs þann 13.10.2021. Tillagan var auglýst 19.10.2021-30.11.2021 og var athugasemdafrestur framlengdur til 9.12.2021. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa á fundi sínum þann 14.12.2021 að taka saman umsögn vegna framkominna athugasemda. Uppfærð gögn ásamt umsögn skipulagsfulltrúa lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða uppfærða tillögu að deiliskipulagi vesturbæjar ásamt greinargerð og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.