Strandgata 55, beiðni um lóðarstækkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3300
6. október, 2011
Annað
Fyrirspurn
Jóhannes Viðar Bjarnason sækir, f.h. Fjörukráarinnar ehf, með bréfi dags 26.9.2011 um lóðarstækkun á lóðinni nr. 55 við Strandgötu, skv. meðfl. lóðarblaði. Lögð fram umsögn skipulags- og byggingarsviðs.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Fjörukránni ehf viðbótarlóð við Strandgötu 55 í samræmi við fyrirliggjandi gögn, umsögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarsviðs."