Menningar- og ferðamálanefnd - 168
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3300
6. október, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 27.9. sl.
Svar

Lagt fram. 19.1. 1106052 - Könnun á fjölda ferðamanna til Hafnarfjarðar 2011. Rætt um upplýsingamiðstöð ferðamanna í Þjónustuveri og á Byggðasafni. Anna Bára Gunnarsdóttir deildarstjóri Þjónustuvers og Björn Pétursson forstöðumaður Byggðasafnsins mættu til fundarins og fóru yfir sumarið. Anna Bára Gunnarsdóttir greindi frá því að fyrstu tölur um fjölda ferðamanna í Þjónustuveri sýni aukningu frá árinu á undan. Rætt um nauðsyn þess að bæta merkingar frá Þjónustuveri til Byggðasafns, enda er upplýsingagjöf til ferðamanna á Byggðasafni um helgar. Ákveðið að fela Önnu Báru, Birni og Marín að finna lausn á málinu. 19.2. 1012277 - Grundtvig Learning Partnership, Lifelong Learning Programme, samningur Björn Pétursson, forstöðumaður Byggðasafnsins, mætti til fundarins og sagði frá Evrópuverkefninu "Lifelong Learning Programme" en verkefnið heitir Promoting Early European photography. Á döfinni er heimsókn hinna aðildarlandanna, Englands og Slóvakíu, til Íslands. Nefndin þakkar fyrir kynninguna.