Menningar- og ferðamálanefnd - 167
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3299
22. september, 2011
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 13.9.sl.
Svar

10.1. 1109040 - Sveinssafn, staða og framtíð Lagt fram svarbréf frá menntamálaráðuneyti við ósk Sveinssafns um þríhliðasamning. Ráðuneytið er ekki í aðstöðu til að taka upp slíkar viðræður. Nefndin lýsir yfir vonbrigðum með dræmar undirtektir ráðuneytisins. Ákveðið að ræða við forsvarsmenn Sveinssafns um uppkomna stöðu. 10.2. 1109141 - Bókasafn Hafnarfjarðar 90 ára. Greint frá því að þann 18. október 2012 fagnar Bókasafn Hafnarfjarðar 90 ára afmæli. Lagður fram tölvupóstur frá forstöðumanni. 10.3. 1109140 - Tjaldstæðið á Víðistaðatúni. Vettvangsskoðun um tjaldstæðið og heimsókn til Hraunbúa. Nefndin þakkar nýráðnum rekstarstjóra Páli L. Sigurðssyni fyrir upplýsingarnar og óskar eftir tölum um fjölda ferðamanna og gistinátta á tjaldstæðinu sumarið 2011 með samanburði við fyrri ár.