Lengd viðvera fatlaðra framhaldsskólanema
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1666
12. október, 2011
Annað
Fyrirspurn
11. liður úr fundargerð BÆJH frá 6.okt. sl. Lögð fram tillaga fjölskylduráðs frá 21.9.sl. um gjald fyrir lengda viðverðu sem vísað var til bæjarráðs. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gjald fyrir lengda viðveru verði 14.000 kr. á mánuði."
Svar

Gunnar Axel Axelsson tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.