Aðalskipulag Norðurbær breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 279
9. ágúst, 2011
Annað
Fyrirspurn
Tekin til umræðu breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði. Jafnframt er unnið að endurskoðun deiliskipulags Norðurbæjarins.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að gera tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn og taka saman lýsingu á verkefninu í samræmi við 30. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gerð verði tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn og tekin saman lýsing á verkefninu í samræmi við 30. grein skipulagslaga nr. 123/2010."