Aðalskipulag Norðurbær breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 297
17. apríl, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði dags. 11.07.2011. Jafnframt er unnið að endurskoðun deiliskipulags Norðurbæjarins. Kynningarfundur á aðalskipulagi og deiliskipulagi var haldinn 31. mars 2011. Tillagan var auglýst skv. 31. grein skiulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillöguna og að málsmeðferð verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði dags. 11.07.2011 og að málsmeðferð verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010.