Selhella 9,breyting á áður samþykktum teikningum, byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 377
21. september, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Vesturkantur ehf sækir um þann 28.06.2011 að breyta lítillega áður samþykktum teikningum. Húsin eru nú sprinklervarin, inntaksrými er sameiginlegt, millipallar bætast við matshluta 01 og innréttingar matshluta 02 breytast lítillega samkvæmt teikningum. Nýjar teikningar bárust 14.09.11.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010.