Hafnarstjórn - 1395
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3293
23. júní, 2011
Annað
‹ 15
16
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 21.júní sl.
Svar

Lagt fram. 16.1. 0909104 - Saga Hafnarfjarðarhafnar Ingvar Viktorsson formaður ritnefndar skýrði frá gangi mála varðandi ritun sögu Hafnarfjarðarhafnar. 16.2. 1012039 - Óseyrarbraut 29 - 31, skipulag Farið yfir stöðu skipulagsmála framangreindra lóða. Sigurbergur Árnason greindi frá fundi skipulags- og byggingarráðs,sem haldin var í morgun varðandi breytingar á deiliskipulagi þessara lóða. Samþykkt að hafnarstjóri hafi samband við lóðarhafa og málið síðan tekið fyrir á ný. 16.3. 1011392 - Átaksverkefni tengd hafnsækinni starfsemi. Rætt um fyrirliggjandi verkefni og framhald þeirra. 16.4. 1010890 - Áætlun 2011, Hafnarfjarðarhöfn Farið var yfir stöðu viðskiptavina hafnarinnar ásamt helstu verkefni, sem eru í gangi og á döfinni. Hafnarstjóri fór yfir skuldastöðu ýmissa viðskiptavina,og hann gerði grein fyrir helstu verkefnum sem unnið er að í dag á vegum hafnarinnar. Jafnframt fór hann yfir stöðu mála varðandi ýmis verkefni og lóðir á hafnarsvæðinu.